Skiptinemar 2007

03.07.2009 09:31:32 / afs07

skiptinema útilegan 2009

Jæja þá er komið að því!

Árlega skiptinema útilegan er að renna upp eftir 2 vikur.

Hvenær: 17-19.júlí kl:5 eða seinna
Hvar: Varmaland
hvað á að koma með: eigin mat, drykk, tjöld og fleira sem þið finnið uppá...

Sundlaugin er opin til klukkan 10 á föstudagskvöldið.

Leiðin: 
    Frá Reykjavík: Keyra í Borganes, í hringtorginu fara eins og á Akureyri og beygja til hægri hjá Baulu (sjoppunni) og þá finnið þið þetta. 
    
Verð: 900 kr ein nótt svo 1800 kr fyrir helgina.

Ef þið hafið einhverjar spurningar þá getiði hringt í mig í síma: 770-4016 eða sent mér email á fjolasig@visir.is

- Fjóla

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.10.2008 16:07:50 / afs07

Stelpan í Rússlandi

Ég veit ekki hvort einhver skoðar þessa síðu ennþá en þetta blogg er varðandi stúlkuna sem var skiptinemi í Rússlandi.

Þanng er mál með vexti að þessi stelpa var á heimili sínu og var að skoða einhverja byssu á meðan 20 bróðir hennar var í tölvunni sem endar með því að hún skýtur óvart úr byssuni og fer í höfuðið á bróðri sínum. Það s.s. hljóp bara af byssuni, 100% óviljandi. Fjórum dögum seinna deyr bróðir hennar vegna áverkanna en stelpan er komin til landsins.

Þetta er náttúrlega rosalegt og vá hvað ég finn til með stelpunni.

Veit einhver hver þessi stelpa er? Er hún á vegum AFS.

Ef hún er að lesa þetta þá vil ég segja að þetta var óvart og núna verður þú bara að vera sterk og þetta á eftir að enda vel.


» 8 hafa sagt sína skoðun

12.07.2008 13:09:23 / afs

Spennandi verkefni

Hæ allir

Við hjá Reykjavíkurdeildinni erum á fullu í fjölskylduöflun þessa dagana, en nú fer að styttast í að 49 nýjir nemar komi til landsins. Enn vantar 28 fósturfjölskyldur og því er mikið verkefni fyrir höndum. 

Næstkomandi laugardag (19. júlí) verðum við með smá húllumhæ á Austurvelli sem hluta af fjölskylduöflun og okkur bráðvantar sjálfboðaliða til þess að aðstoða við að dreifa bæklingum og fleira.

Þetta verður án efa stórskemmtilegt, enda höfum við ýmis tromp uppi í erminni. Þeir sem hafa áhuga á því að taka þátt í þessu með okkur, eða hafa einhverjar frekari spurningar geta sent okkur póst á reykjavikurdeildafs@gmail.com eða hringt í Snædísi í síma 694-6249 eða Möggu í síma 865-4759. Allir eru að sjálfsögðu velkomnir. 


Fyrir hönd Reykjavíkurdeildar, Snædís og Magga:)

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.06.2008 15:51:06 / Brynhildur

Brottför frá USA

Okay ég get ekki skrifað í komment svo ég skrifa bara nýtt blogg til að svara þér Vala. Ég veit ekki allveg hvernig það er hjá þér, en fyrir flesta á austurströndinni þá förum við frá fjölskylduni okkar 30 júní svo á AFS að koma þér til New York fyrir hádeigi 1 júlí, hjá mér þá fer ég með rútu yfir nótt frá South Carolina. Þar eigum við öll að hittast, allir skiptinemar frá íslandi, og svo eigum við pantað flug frá New York til Íslands klukkan 20:35 og eigum að lenda á íslandi klukkan 6:20 að morgni 2 júlí. Vona að þetta hjálpi.
Sjáumst á þriðjudagin
Kveðja Brynhildur

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.06.2008 05:33:22 / Vala

USA heimför...

Ég var nú bara að spá hvort að einhverjir að ykkur sem eru í bandaríkjunum séu búin að fá flugplön og þannig.  Vitiði eitthvað hvort að við verðum yfir nótt í NY eins og síðast eða hvað.  Ég er ekki búin að fá nánast neinar upplýsingar, veit ekkert með hvaða flugfélagi ég flýg með innanlands.  Veit bara að ég flýg frá La til NY og síðan frá NY til íslands, og svo var mér sagt líka að ég myndi vera yfirnótt á hóteli í LA þar sem ég hitti alla hina íslensku nemana sem eru í bandaríkjunum, en ég er sú eina sem er í kaliforníu þannig að ég verð sú eina þar, mjög líklega.  Svo ég veit bara ekkert hvað Afs er að bulla....

Vitið þið eitthvað meira en ég?

Kv. Vala í Cali 

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.05.2008 15:56:44 / Katrín

pirringur fyrir allann peninginn

Halló allir skiptinemar og fleiri.

Ég hef aldrei bloggad hérna inná, en núna á ég í smá vanda.
Ég aetla samt ad byrja á tví ad kynna mig.    Katrín heiti ég og ég er í portugal, og hef verid hérna (eins og thid flest oll held ég) sídan í septemer. Brottfarad dagur er 28 júní, og styttist ódum í thann dag.

Thannig er mál med vexti ad ég er alveg vid thví ad fara heim. Ég bý alein med konu sem er 63 ára gomul. Vid eigum ekki neitt sameiginlegt. Hún hlustar á hraedilega tónlist, og horfir bara á fréttir í sjónvarpinu. Er búin ad fara med henni í ferdalog sem var svosem alveg fínt. En á ollum stodum fór ég og skodadi kirkjur. Ég veit ekki hvad ég hef farid inní margar kirkjur hérna í portugal. Endalaust leidinlegt.

En já, thessi kona er ad gera mig brjálada. Thad lídur ekki dagur án thess ad ég sé pirrud, sár og reid útaf henni. Ég gjorsamlega tholi thessa kellingu ekki. Hún er svo hraedilega leidinleg. Thetta er ekki bara svona stundarbrjálaedi núna thessa dagana, hún hefur verid leidinleg frá fyrsta degi.
En núna hef ég fengid nóg. Ég get ekki litid framan í hana lengur, ég tholi ekki ad heyra hana tala, ég tholi ekki thegar hún segir nafnid mitt. Svo gerir hún í tví ad nidurlaegja mig fyrir framan fjolskylduna. Segir eitthvad um mig, fer svo ad skellihlaegja og pikkar í oxlina á mér, og hah Katrín er thetta ekki fyndid.
á svona stundum langar mig til ad aela á hana !!!
Ég er alveg komin med óged af henni !!!!! 

Hvad á ég eiginlega ad gera?
Ég get ekki búid med thessari kellingu lengur !

» 5 hafa sagt sína skoðun

25.04.2008 08:21:40 / Sindri

Upplifun (?)

Tekið af blogginu mínu
www.sindri.bloggar.is

Heimsálfa:
Suður-Ameríka
Land: Venezuela
Borg: Mérida
Dagsettning: 24. apríl
Klukkan: 19:33

Persóna 1: Sindri
Persóna 2: Gaurinn sem rændi Sindra

Ég vissi að þessi dagur mundi koma, ég er í rauninni búinn að bíða eftir honum síðan ég kom hingað. Ég var rændur. Þetta er kannski það hræðilegasta sem ég hef lent í á ævinni þar sem það eru framin morð í borginni minni mörgum sinnum á mánuði og Caracas, höfuðborgin er með hæðstu morðtíðni yfir allar höfuðborgirnar í heiminum.

Ég var s.s á leiðinni heim af fótboltaæfingu og ég þarf alltaf að labba í gegnum dálítið hættulegt svæði til þess að komast heim. Þetta er brú sem ég þarf að labba yfir og undir brúnni er eitthvað sem við köllum "barrios" og er svæði þar sem fátækafólkið bókstaflega býr til sín eigin heimili úr málmplötum, spýtum og ýmsu öðru drasli.  Þegar ég var kominn yfir brúnna leit ég fyrir aftan mig og þar var enginn en þaðan eru aðeins um 100 metrar í ein stærstu gatnamótin í borginni. Svo allt í einu grípur 25-30 ára gamall maður í öxlina á mér með brotna glerflösku í hendinni og lætur flöskuna við magann á mér. Hann sagði mér að stoppa.
Það sem ég var með í töskunni voru fótboltaskórnir, legghlífa, 60 GB iPod, veskið mitt og símann.
Hann spurði mig hvort ég talaði spænsku og ég svaraði já. Ég skal lýsa fyrir ykkur spjalli sem ég aldrei eftir að gleyma:

Hann: Talaru spænsku?
Ég:
Hann: Ég er að ræna þig og ekki reyna að flýja því vinur minn er þarna rétt hjá gatnamótunum ef þú skyldir reyna að hlaupa
Ég: Já, hvað viltu
Hann: Hvað ertu með?
Ég: Vitlu fá peningana mína?
Hann: Ertu með pening?
Ég: Já, taktu við þeim
Hann: Komdu aðeins nær götunni
Ég:
Hann: Komdu núna með  útvarpið þitt
Ég: Ha?
Hann: komdu með mér yfir götuna, núna!

Hinum megin við götuna var húsasund og þaðan var stigi niður í þessi hverfi eða "barrios"

Hann: Komdu með útvarið þitt!
Ég: En ég er með myndir af fjölskyldunni minni á íslandi á iPodinum mínum
Hann: (Lyftir flöskunni hærra) Fljótur!! (Og labbar svona 3 skefum frá mér)

Þá ákvað ég að hlaup eins og ég væri með fokking kjarnorkusprengju í rassgatinu. Eftir svona 10 sek hlaup er ég kominn inní "fjöldann" og hættan s.s. liðin. Ég hélt samt áfram að hlaupa alla leið heim EF hann skyldi elta mig þá mundi hann ekki sjá hvar ég ætti heima.
Ég kom heim, sagði brósa og mömmu minni hérna frá þessu. Ég sagði brósa frá þessu á ensku svo ég gat notað öll sagnorðin sem ég vildi nota en svo sagði ég mömmu minni þetta á spænsku, eftir að hafa róað mig niður. Svo fór ég að brosa og hlægja.

Það sem gaurinn náði af mér var 15 Bs.F (boliviars fuerte)  eða 35 Bs.F sem er ekki það mikið. Það er reyndar svona út að borða fyrir tvo hérna í Venezuela en þetta erum 250 krónur (15.Bs.F).

Magnað þetta skiptinám ekki satt?


Hefur eithvað svona komið fyrir ykkur?

Ekki gleyma svo blogginu hérna fyrir néðan!!

kv. Sindri Venezuela

» 6 hafa sagt sína skoðun

24.04.2008 01:27:22 / AuðurB

Fjolskylda á Íslandi

Já hae

Mig langar ad bidja ykkur...teir sem lesa tessa sidu...ad athuga hvort tid eda einhver sem tid tekkid getid tekid vid skiptinema fra Brasilíu sem kemur til íslands i agust, tad er stelpa sem heitir Larissa, hun er 17 ara og er rosalega fin, eg hitti hana sjalf sidasta laugardag i fyrsta skipti og taladi vid hana stanslaust nanast allan timann sem eg var med henni..og eg er i alvorunni ein feimnasta manneskja i heimi, tannig hun er rosalega opin og fin og tad er rosalega gaman ad vera med henni, eg myndi taka vid henni sjalf ef tad vaeri ekki erfitt fyrir fjolskylduna mina akkurat a tessu timabili....
En eg vona bara innilega ad tid getid fundid fyrir hana fjolskyldu og sem fyrst, hun tarf fjolskyldu a naestu dogum svo hun geti komid til islands...
Teir sem geta tekid vid henni mega vinsamlegast senda mer upplysingar a audur_b@hotmail.com ... mer taetti tad otrulega skemmtilegt :D hehe

En allavegana...vonandi hafa allir tad gott, og vonandi getur einhver hjalpad mer...afs her er alltaf ad spurja hvort eg hafi fundid fjolskyldu fyrir hana:P hehe en tad er i godu

Beijos
Audur i Brasilíu

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.04.2008 18:58:44 / afs07

Útileigan fræga...

Já halló!

Er einhver farinn að pæla í frægu AFS útileigunni sem allir bíða eftir? Mér persónulega lýst mjög vel á sama stað og í fyrra og á svipuðum tíma.

Hvernig lýst fólki á síðustu helgina í Júlí...???

Flestir eru komnir heim ekki satt... fyrir utan Venezuela og Ungverjaland... held ég

En allaveganna, föstdagurinn 25.júlí- sunnudagsins 27.júlí.

Commentið fólk!


» 16 hafa sagt sína skoðun

31.03.2008 01:00:15 / Sindri

Já...

Er þetta bara ég eða finnst mér eins og þetta skiptinema ár sé allveg að vera búið?  Ég sem hélt að þetta væri rétt að byrja...

Hvenær farið þið heim til Íslands..?

Við í Venezuela komum heim frekar seint eða um 26. júlí

Heyrumst


» 13 hafa sagt sína skoðun

05.03.2008 22:12:37 / Ásmundur

Fjolskylduskskipti, Ási í Argentínu

Jaeja ég er eiginlega í dálitlum vandraedum hérna en thannig er mál ad ég er í vandraedum hérna. Fjolskyldan er alveg rosalega fín og allt thad fyrir utan 3 ástaedur,

1. Mamman er rosalega strong t.d. á ég alltaf ad vera kominn heim um 3. á nóttunni um helgar eda einmitt thegar partíin eru ad verda hvad skemmtilegust :cry: . Thad skiptir samt ekkert hofudmáli nema thad ad thegar systir mín fer eitthvad svona thá setur hún venjulega engann tíma og hún er 1. ári eldri en ég. Ég bý í littlum og mjog oruggum bae svo thad aetti ekki ad vera málid.

2. Maturinn hérna er HORMUNG, bordar naestum thví aldrei kjot(ótrúlegt í argentínu), daemi um mat hérna er einn réttur; hrísgrjón, graenar baunir, smá af eggjastrimlum og MAJONES :$ , annad daemi; baunaommiletta, svo hellingur af einhverjum hrísgrjónaréttum sem innihalda yfirleitt aldrei neina prótínfaedu nema kannski baunir og einstaka sinnum kjúkling.

3. Lang mikilvaegasta ástaedan, bródir minn sem ég deili herbergi med stelur af mér, stelur pening úr veskinu mínu, stelur bókstaflega ollu sem honum dettur í hug, allt frá verdlausu drasli sem ég er med eins og klinki frá íslandi sem ég kom med til thess ad sýna fólki og gefa einstaka(hann tók allt) til peninga úr veskinu mínu, ég sef núna med veskid í koddanum mínum en thegar ég gleymi ad setja thad thar thá hverfur peningur í 90% tilvika úr veskinu mínu. Held ad í heild ad draslid sem hann er búinn ad stela af mér sé svona 3000kr sem er stjarnfraedileg upphaed hérna, ég er búinn ad tala vid foreldrana um thetta, gerdi thad í hvert einasta skipti thangad til ad mamma mín brást illa vid thessu(pirrud út í mig). Honum er alveg sama um thetta. Ég er svo engann veginn oruggur med draslid mitt hérna, get ekki treyst thessu krakkagerpi med neitt, panicadi illa á mánudaginn thegar ég gat ekki fundid myndavélina mína og taladi vid afs, fann samt myndavélina mína. Hann er mjog svo týpískt daemi um afbrigdisamt hostsystkini. AFS er búinn ad segja mér ad ég fae ad skipta ef ég vill útaf thessu.

En núna er thad sem gerir thetta erfida ákvordun, mér kemur rosalega vel saman vid systir mína og erum vid gódir vinir, og margir af vinum hennar eru mínir vinir núna, og foreldrarnir eru gódir(voru frekar erfidir í umgengni fyrst(bara mamman samt) en thad hefur samt skánad dáltid) thótt their hafa enga stjórna á thessum smákrakka(hann er samt fjórtán ára). Jaeja hvad finnst ykkur, mér persónulega finnst ég ekki getad verid hérna og thá sérstaklega útaf ástaedu 2. og 3. en hvad finnst ykkur um thetta?

» 10 hafa sagt sína skoðun

18.02.2008 00:34:33 / Bryndís

Belo USA

Hæ, hæ!

Ég hef nú ekkert skrifað hérna inn síðan ég kom til Californiu. Það gengur bara allt rosalega vel hjá mér, skólinn er fínn og fjölskyldan mjög góð :) Ég vona að allt gangi vel hjá ykkur hinum :) Við erum meira en hálfnuð með dvölina, sem mér finnst alveg ótrúlegt, tíminn er búinn að fljúga áfram finnst mér.

Mig langaði að spurja þau sem eru í Bandaríkjunum hvort að þið ætlið að fara í ferð með Belo USA um páskana. Ég og Cathrine, fóstursystir mín frá Noregi ætlum að fara til New York og Washington D.C. 15.-22. mars :)

Það væri gaman að vita hvort að einhverjir aðrir ætla að nýta sér þetta tækifæri líka :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

13.01.2008 20:23:58 / Auður

Fjölskyldan og tungumálið?

Hæ! Ég heiti Auður og er í Austurríki :)

 

Ætla bara að byrja á að segja gleðileg jól og gleðilegt nýtt ár ;) 

 

Ég var að pæla.. hvernig eru fjölskyldumálin búin að ganga hjá ykkur?

 

Mín eru svosem búin að ganga upp og niður.. mér fannst ég á tímabili ekki passa inn í fjölskylduna og fannst líka staðsetningin alveg hræðileg, af því að ég bý lengst út í sveit og það tekur mig ca klukkutíma að komast í skólann á morgnana. Var á tímabili að hugsa um að skipta um fjölskyldu en trúnaðarmaðurinn minn var eitthvað á móti því og eitthvað bull.

En þetta er orðið betra núna, er orðið nánari fjölskyldunni og já verður vonandi bara betra :)

 

En já hverjir eru svo búnir að skipta um fjölskyldur og af hverju skiptuð þið og hvernig reynist svo nýja fjölskyldan? :)

 

Ég ætla bara að viðurkenna það að ég gæti verið orðin miklu betri í þýsku heldur en ég er, tala ennþá pínu ensku en það er bara við vinkonu mína sem er frá usa sem er með mér í bekk, besta vinkona mín btw en hún er að fara heim í byrjun febrúar, er bara eina önn hérna.. finnst það ömurlegt.. en ég læri þá bara meiri þýsku eftir að hún fer heim.. maður verður að bara að horfa á björtu hliðarnar

Hvernig gengur annars tungumálið hjá ykkur?

 

Jæja segi þetta gott í bili :) Hafið það geðveikt gott þessa mánuði sem við eigum eftir ;) 

  


» 10 hafa sagt sína skoðun

29.12.2007 12:11:18 / Steiney Australia

Gledileg jol ;)

Hallo allir saman!

Eg heiti Steiney og er i Astraliu. Tette hefur gengid upp og nidur, mest upp samt ;) Enskan einfold og er buin ad laera sma astrolsku :haha:

Tad sem eg vildi segja her er fyrst og fremst

Gledileg Jol

og

Farsaelt komandi ar

Svo eiga allir skiptinemar sem foru ut i sumar/haust skilid klapp a bakid. Erfidasti parturinn er buinn og nuna er bara gamanid eftir ;)

Take care,
Steiney


» 5 hafa sagt sína skoðun

22.12.2007 17:30:30 / Hildur

Vandamál med AFS í landinu ykkar...(?)

 

Saelir allir skiptinemar!!

Vona ad allir séu virkilega ad njóta reynslunnar úti í nýju landi! Ég er allaveganna virkilega ad njóta eins besta árs lífs míns!!

Ég heitir Hildur Inga og er skiptinemi úti í Paraguay. Mig langadi bara ad vita ef ad thad eru einhvernir adrir sem eru ad lenda í vandraedum med AFS í landinu sínu? AFS Paraguay er nefninlega bara virkilega lélegt! Ég er alls ekki ad reyna ad hraeda verdandi skiptinema í Paraguay eda neitt thannig, ég persónulega er ekki ad lenda í neinum stórum vandamálum og virkilega ad njóta thess ad vera hérna en thad eru krakkar sem eru ad lenda í svakalegum vandraedum... Thad eina sem AFS Paraguay virdist gera vel er ad leita uppi skiptinema sem drekka áfengi og reyna ad gefa theim vidvorun svo their geti sent thá heim naest (thad er svaka partí menning hérna, allir djamma og drekka vid hvert taekifaeri svo skiptinema, allaveganna langflestir, "adlagast" thessari menningu, thetta er bara óskop edlilegt hérna ad drekka áfengi). Einnig virdast samtokin, eda fólk innan thess, virkilega ljúga upp hluti. Veit um nokkur daemi um thad... Allaveganna thad virdist eins og AFS fólkid hérna kunni ekki ad sinna storfunum sínum almennilega og local representer-arnir á hverju svaedi/baejum eru flestir afar óhaefir í starfid!! (Audvitad er líka alveg aedislegt fólk ad vinna fyrir AFS líka eins og nánast flestir sjálfbodalidarnir í Paraguay, fyrrum skiptinemar til annarra landa :P )

Svo er annad mál... okkur sagt ad thad séu 5 AFS reglur (ekki drekka, keyra, dópa, ein sem ég man ekki og stunda skólann vel... einhvernveginn thannig) 5 reglur sem vid thurfum ad fylgja, thad aetti ekki ad vera svo erfitt en eftir thví sem lídur af AFS árinu mínu hérna er ég ad uppgotva sífellt fleiri reglur sem ég minnist ekki ad neinn hafi kynnt fyrir mér... Eins og til daemis thá megum vid ekki ferdast á nóttunni sem er afar óhentugt thar sem thad er rosalega slaemt ad ferdast med rútunum langar vegalengdir í paraguay yfir daginn vegna hitans og rúturnar eru venjulega ekki loftkaeldar og hrikalega offylltar (thad er trodid inn í thaer thangad til ad thad komast ekki fleiri inn, gangarnir úttrodnir af fólki líka). Sídan thurfum vid ad fylla út pappíra í hvert skiptid sem vid viljum ferdast eda bara fara einhvert og gista yfir nótt og fleira thannig, semsagt afar erfitt ad ferdast eitthvad af viti en audvitad tekst thad (hef verid frekar lítid heima hjá mér sídan sumarfríid byrjadi (áststídarnar eru ofugar)). Thad gaeti thó verid ad AFS á Íslandi hafi kynnt thetta eitthvad en ég man thad ekki vel thar sem thad er langt sídan ég fór á námskeidid thar...

Er bara ad hugsa hvort ad krakkar í odrum londum séu ad lenda í einhverjum vandraedum med AFS í dvalarlandinu?

Kaerar kvedjur frá Paraguay!

Hildur Inga :)

P.S. Gledileg jól!! Vona ad allir munu hafa thad sem best um jólin!! :)


» 18 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Dagsetning
28. janúar 2012
Heimkoma Bandaíkínn.
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1313 dögum
RSS tengill
Brasilía
Venezuela
Nýja-Sjáland
Guatemala
Malasía
Ungverjaland
Mexíkó
Vetrarbrottför
Dóminíska Lýðveldið
Ástralía
Hong Kong
Austurríki
Spánn
Paraguay
Belgía
Klukkan
Viltu vera me�?°?
Sendu bréf til Brynhildar á byo_90@hotmail.com