Ég vil byrja á því
að afsaka yfirblogg. Allir að kíkja á bloggið fyrir neðan.

Ætla að kynna mig. 
Ég heiti Margrét, kölluð Magga. Ég er 17 ára og á leið til
Dómeníska Lýðveldisins. Ég hringdi upp í AFS og þá kom í ljós að
hún var búin að senda mér staðfestingar-póstinn en hotmail var bara
í rugli eða eitthvað. Þannig ef þið eruð ekki búin að fá svar en
aðrir í sama landi eru komnir með það, þá myndi ég hringja.
Semsagt, ég fékk að vita í dag að ég fæ að fara. Jeij.
Ooooooooooooooooooooooog. *drum roll* Ég náði bóklega bílprófinu í
dag! Er að springa af ánægju. Engin villa í A-hluta. Gæti ekki
verið stoltari þar sem ég féll og féll á prófunum á netinu.
Ok, búin að monta mig. (:
Allaveganna, get ekki beðið eftir að fara út. Og ef það eru
einhverjir aðrir sem eru að fara til Dómeníska hér, endilega
láta sjá sig. Ég veit af Berglindi A. (:
Síðan mín er ... http://www.dr-magga.bloggar.is og
mæspeisið er hérna hliðiná í linkunum.
