Skiptinemar 2007

30.06.2007 18:51:02 / EyrúnG

Ítalíufari=)

Hæhæ=) ég heiti Eyrún og er að fara sem skiptinemi til Ítalíu. Er komin með æðislega fjöldskylda sem samanstendur af mömmu (Dodi), 14 ára systur (Annika) og 17 ára systur (Selina) en Selina er að fara til Bandaríkjanna á meðan ég verð í Ítalíu. Ég verð á Rimini og hlakka ekkert smá til!

e-mailið mitt er eyrun_69@hotmail.com endilega addið því og sérstaklega ef þið eruð að fara til Ítalíu=)


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.06.2007 19:11:58 / Brynhildur

Þetta er allt að koma :)

Ég fékk þetta fína símtal frá afs í fyrradag um að ég væri komin með "stað" í Bandaríkjunum. Þau voru reyndar að hringja til þess að byðja mömmu og pabba taka skiptinema en ég fékk svona smá auka fréttir í leiðinni :)

Þetta er ekkert nákvæmt en ég er komin með north east USA, Verð í orientation camp í Syracuse og verð að öllum líkindum í New York eða Massachusetts. Fékk líka svona nokkurnvegin staðfestan brottfarardag eða 9. ágúst en fæ það endanlega staðfest á mánudaginn. 8)

Kveðja Býó


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.06.2007 10:33:52 / Eva

Ég er komin með fjölskyldu! :D

Ég var á msn í dag þegar einhver sem ég þekki ekki neitt byrjar að tala við mig á ensku.. auðvitað segi ég bara "Who is this?" og þá segir hann á móti "I'm the son of your new family!!".. og ég sem vissi ekki einu sinni að ég væri komin með fjölskyldu!! Næsta klukkutímanum eyddi ég svo í að spjalla við strákinn og verð ég að viðurkenna að brosið hefur ekki farið af andlitinu mínu síðan!

Fjölskyldan samanstendur af Francis (47 ára mamma), Ivan (51 árs pabbi), Rodrigo (16 ára bróðir) og Raquel (11 ára systir). Rodrigo verður þó skiptinemi í Belgíu á sama tíma og ég er hjá fjölskyldunni svo Raquel verður eina systkini mitt úti! :) Þau eiga einn hund sem heitir Rocky og er Schnauzer.

 

Pabbi, mamma og litla systir :*

Fjölskyldan býr í "litlum" eða 200.000 manna bæ sem heitir Guatire og er hálftíma frá Caracas, höfuðborginni, og ekki langt frá strönd. Þau búa í fínu húsi og eru mjög vel stödd miðað við suður ameríkubúa. Ivan vinnur hjá stærsta símafyrirtækinu í Venezuela og Francis er lærður líffræðingur og vann við að kenna en hætti því svo og fór að baka bæði kökur og eftirrétti sem hún selur stórum veitingastöðum.

Í húsinu er bæði loftkæling og tölva með interneti. Þar fæ ég mitt eigið herbergi sem Rodrigo er að breyta, það er nefnilega ekki alveg það stelpulegasta! :)

 
Ef þið viljið skoða fleiri myndir þá eru þær á www.brink.bloggar.is ;)

 
Kv. Eva Rós Venezuelafari! :D:D


» 10 hafa sagt sína skoðun

26.06.2007 21:19:47 / Karen

Hérað og Skóli!!!

hæhæ!

Ég vildi bara deila því með ykkur að ég er komin með hérað, bæ og skóla í Kína! Ég verð í Jiangsu héraði í bænum Chang Zhou og í skólanum Chang Zhou senior school.  Þetta er s.s. rétt fyrir utan Sanghai! :D vildi bara deila þessu með ykkur:D

Kveðja Karen Rut kinalína:D


» 5 hafa sagt sína skoðun

22.06.2007 15:36:48 / Nína

Miðnæturganga á esjuna:D

Hæ eins og flestir vita var fjallganga á esjunni í gær:D miðnæturganga réttara sagt;D

við lögðum af stað upp fjallið kl. 22 og vorum komin niður um half 2 - 2

ég ætla bara að skella inn myndum sem segja sitt:D

 
 
 ´skiptinemi a íslandi
 
 Karen?
 
 jájá þetta var smá púl:D
 
 en við komumst að gestabókinni:D Þú ert svo töff;)
 
 og við fundum kross á vörðu:D
 
 hitt fólkið og Rvk
 
mi bueno amigo Pele:D
 
 og hinir líka:D
ekki náðist mynd af öllum vegna þess að sumir voru heldur til of fljótir og aðrir nenntu ekki alla leið;)
en takk fyrir ferðina krakkar;*:haha:
-Nína:)

» 11 hafa sagt sína skoðun

20.06.2007 22:53:06 / Sara

halló hæ!

Já þá talaði ég við afs í dag og fékk að vita það að ég yrði í great lakes territory í Chicago, Illinois! og mér líst bara helvíti vel á það! Var ekki eikker annar sem var að afara til Chicago? Aaaaanyway vildi bara deila þessu hérna með ykkur:P og svo kannski að deila með ykkur því að ég er eftir dálitla töf að ég drattaðist loks í að fá mér bílpróf og það tókst! Hell Yeah! Takk fyrir mig og gott kvöld :D

» 9 hafa sagt sína skoðun

17.06.2007 22:59:06 / AuðurB

Hæhæ

Ég heiti Auður og ég er að verða 18 ára á þessu ári ég bý á Hellu, og ég er að fara til Brasilíu 2.ágúst n.k. :D hlakka ekkert smá mikið til:P

Langaði bara að kynna mig hérna :P

Ég er líka með síðu, audur-b.blog.is ætla að blogga þar um Brasilíuferðina og svo er ég líka með myspace.com/audur_b :P og já ef þið viljið spjalla eða einhvað þá er msnið mitt audur_b@hotmail.com 

Auður:D


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.06.2007 19:49:22 / Karen

Karen Rut Kína:D

hæhæ Ég heiti Karen og er 16 ára. Ég er á leiðinni til Kína í ágúst:D get bara varla beðið!!!! ég á s.s. eina systur sem ættleidd frá kína og er allgjör dúlla :P ohh ég get varla beðið lengur eftir fjölskyldu hehe og hlakka til að fara en svo er ég líka með síðu sem er www.blog.central.is/kinalina endilega kíkja og svo ef þið viljið spalla meira endilega addið mér á msn yrja_dulla@hotmail.com Svo var ég að frétta áðan að Marta sem er líka að fara til Kína en já hún var að fá fjölskyldu og vá ég varðe ikkað svo spennt og get ekki beðið eftir minni fjölskyldu:P kv. Karen Rut

» 2 hafa sagt sína skoðun

12.06.2007 22:05:43 / Eva

Eva Rós til Venezuela

Hæhæ!

Langaði bara að kynna mig þar sem ég er alveg ný í þessari síðu! :) Ég heiti allavega Eva Rós og er 17 að verða 18 ára gömul. Ég var að klára annað árið mitt á náttúrufræðibraut í Verzlunarskóla Íslands og er að fara til Venezuela í byrjun september ásamt 2 öðrum! :) Við erum 2 að fara í skóla úti en svo er ein stelpa að fara í sjálfboðastarf.. áætluð brottför er held ég 6. september sem er eftir 84 daga :D

Endilega addiði mér á msn! evaros24@hotmail.com og ekki er verra ef þið eruð að fara til S-Ameríku! ;)

Kv. Eva Rós


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.06.2007 18:21:41 / Margrét

Blue lagooooon

Hæ guys

 

Ég var bara að pæla hvursu margir ætla í Bláa lónið ? 


» 15 hafa sagt sína skoðun

10.06.2007 23:31:52 / Sindri

Sindri til Venezuela - Venesúela...

Halló (eða ég ætti að byrja að venja mig á "Hola")

Hola...

Ég heiti Sindri Már Hjartarson, 17 ára, 1 ár Kvennó - Chekk... Ég er á leiðinni til Venezuela en þar sem ég veit að margir vita ekki hvar Venezuela er þá er það í S-Ameríku

 

Fer 6 september ásamt 2 öðrum Íslendingum í eitt ár til Venezuela en við ætlum aðeins að stoppa í New York bara svona uppá grínið...

 

Msn-ið mitt er sindriok@hotmail.com Bætið mér inná msn-ið ykkar, hvort sem þið eruð að fara til Frakklands, Venezuela (must) eða USA... gaman að spjalla við ykkur á meðan maður er úti (ef maður getur farið á msn)

Ég á líka eitt stykki bloggsíðu sem ég ætla að virkja núna og nota hana úti en hún er www.sindri.bloggar.is

 

En... Nóg komið, gaman að hitta ykkur á námskeiðinu í dag.

Sindri


» 5 hafa sagt sína skoðun

10.06.2007 17:52:33 / Steiney Australia

Hópur 4

Hérna er myndbandið sem ég ætlaði að sýna. ATH þetta er besta lag í heimi!! :

Og hér kemur hitt myndbandið :


» 6 hafa sagt sína skoðun

07.06.2007 15:41:50 / Melkorka

Melkorka til Frakklands

Hæ!

Ég heiti Melkorka Þöll og er 16 ára gömul. Ég er í Verzlunarskóla Íslands og var að klára mitt fyrsta ár sem er nokkuð gott.

Ég er á leiðinni til Frakklands í haust og er full tilhlökkunar. En annars er ekki fleira sem mér liggur á hjarta. Vil kannski bara afsaka lélega bloggkunnáttu mína og segja ykkur frá verðandi heimasíðunni minni...

sem verður: www.blog.central.is/melkoorka

svo er ég líka með myspace sem er: www.myspace.com/melkoorka

Hlakka til að sjá alla þá sem mæta á undirbúningsnámskeiðið á morgun..

-Melkorka


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 16:24:26 / Ragna

námskeið

Jæja þá er ég LOKSINS LOKSINS búin að fá svar!!!

Allavegana var svona að pæla. Ég er að fara á þetta námskeið í Garðaskóla næstu helgi. Verða bara þeir sem eru að fara til Frakklands eða verður líka krakkar sem eru að fara til annara landa?? bara spá sko.

Og þetta verkefni/kynningin hvað í óskopunum á ég að gera. Skil ekki þetta verkefni. ! Á ég að segja afhverju ég valdi Frakkland eða á ég að lýsa frakklandi eða hvað. Þetta er nú meira bullið. Var bara að fá póst um þetta áðan, þannig að stressið er aðeins farið að segja til sín því ég er ekki byrjuð á þessu og veit í raun ekkert hvað á að gera :S Það er svo rugl mikið að gera hjá manni á sumrin sko :D

En já vildi bara deila þessu með ykkur :D

Over and out

Ragna verðandi FRAKKLANDSFARI!!! 

 


» 42 hafa sagt sína skoðun

02.06.2007 17:37:44 / Erla

Jeeei!!

Koma í keðjuleik, einhver?!:D

- Erla


» 19 hafa sagt sína skoðun


Dagsetning
23. febrúar 2012
Heimkoma Bandaíkínn.
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1339 dögum
RSS tengill
Brasilía
Venezuela
Nýja-Sjáland
Guatemala
Malasía
Ungverjaland
Mexíkó
Vetrarbrottför
Dóminíska Lýðveldið
Ástralía
Hong Kong
Austurríki
Spánn
Paraguay
Belgía
Klukkan
Viltu vera me�?°?
Sendu bréf til Brynhildar á byo_90@hotmail.com