Hæbb!
Ég vildi bara gera eins og hinir að blogga um
fjölskylduna mína.
Allavega, ég fékk fjölskyldu í dag, sem ég er
bara nokk sátt með

..
Ég mun búa í 80 þúsund manna bæ sem heitir Mem
Martins, og er eiginlega hluti af lisabon
(höfuðborginni) en samt er 20 km þangað.
spes.
Ég mun ganga í skóla sem heitir Escola
Secundária De Me Martins.
Skólinn er víst rétt hjá mér, þannig ég get
rölt í skólann á hverjum degi.
Skólinn minn!
Ég mun búa ein með fósturmömmu minni. Hún
heitir Isabel og er 63 ára. Alveg hundgömul.
Hún á tvö börn en eru bæði flutt að heiman og
komin með fjölskyldur. En búa samt sem áður mjög stutt frá henni,
og eyðir hún miklum stundum þar.
Svo á hún 8 systkini og foreldra. Og þau eru
öll á lífi.
Stórfjölskylda þarna á ferð.
Mamman hefur mikinn áhuga á því að ferðast og
fara á ströndina.
Lýst bara nokk vel á það.
Allavega, ég er mjög sátt við þetta, og líkar
mjög vel við konuna, eftir að ég las umsóknina hennar.
Vonandi verður hún bara eins góð og út hljómar

..
Ég held bara að þetta sé orðið gott.
Takk fyrir mig

.
-Katrín portúgalfari