Skiptinemar 2007

30.08.2007 00:30:07 / Selma

ÍTALÍU HITTINGUR !!!!

hææ stelpur, hún Berglind hringdi í mig áðan og við vorum að spá i að reyna hittast allar Í KVÖLD 30.ÁGÚST. kl 20:30 á VEGAMÓTUM.... :D
Veit þetta er ekki alveg besti fyrirvarinn en vona að sem flestar geti komið... þið verðið;)
Anna Lind ætlar líka að koma með okkur þannig þá getum við fengið síðustu ráðin um það hverju við eigum að pakka og svona :)
En vonandi komist þið allar, en annas sjáumst við hressar á ferðafundinum 6.sept

Vegamót eru á vegamótastíg sem liggur í gegnum laugarveginn út frá skólavörðustígnum ;)
uu það er bókabúð þarna ská á móti... vona að þið vitið hvar þetta er annas bara bjalliði 6610850

 

-Sjáumst-
  Sellma


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.08.2007 21:44:57 / Magga

Dóminíska

Jaeja, tha er madur komin til Dominiska. Er buin ad vera herna sidan a fostudag og er strax byrjud i skola. Komubudirnar eru svo eftir 2 vikur, hlakka til ad hitta og tala vid alla Íslendingana thar.

Vona ad ferdirnar hafa gengid vel hja ykkur. (Vid lentum i ovedri, eldingar og alles. Segjum bara ad thetta var aevintyri)... og muni ganga vel hjá theim sem eru ekki farnir út.

Er buin ad kynnast odrum skiptinema a svaedinu fra Thyskalandi, hun er skemmtileg og kann miklu meiri spaensku en ég. Ég er í rauninni hormuleg haha. En ég er alltaf ad laera eitthvad.

Vildi bara segja ykkur ad vid erum komin út, ég er svo med meira a blogginu mínu www.dr-magga.bloggar.is .

 --- Verd samt at baeta vid ad eg er alveg svakalega threytt. Ef thid eru threytt tharna uti segjid thad bara og farid ad sofa. Ég er búin ad vera rosalega "lame" og fara ad sofa a undan ollum hinum, en thad er miklu betra thvi thid thurfid orkuna dagin eftir. En thetta er svona alveg fyrst. Og líka, ég á mjog erfitt med ad tala vid flest alla í fjolsk. vegna tungumála erfidleika. En ég er ad reyna, og já, thad hefur verid hlegid ad mer og lika klappad. Svo that er um thad ad gera ad reyna allavega. :)

 Hasta luego!

 x Magga


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.08.2007 01:42:04 / Erla

Ecuadorfarar á ferðalagi!!

Goða kvöldið!

 New York er yndisleg! Erum hér í 10 tíma á Doubletree Hotel á JFK flugvelli!;)

 Flug kl. 6.30 í fyrramálið, að staðartíma, og klukkan hérna er núna 22.40;)

 Vorum að panta okkur roomservice og erum í afslöppun að hlusta á Steineyju kenna okkur spænsku!

 LAangaði bara að láta vita af okkur!:D

 

Erla, Steiney, Hallveig og Halldór!!

Aug 24, 2007

Aug 24, 2007

Erla - Halldór - Steiney - Hallveig!!


» 10 hafa sagt sína skoðun

23.08.2007 22:02:48 / Guðrún

Frakklandsfarar!

Vil byrja á að minna á bloggið hennar Karenar hérna fyrir neðan;)

En já svo er nú komið að við erum að fara til Frakklands eftir bara eina viku, ótrúlegt en satt! Eftir næstum árs bið loksins að koma að þessu!:D Þess vegna væri nú gaman að hittast og kynnast aðeins áður en við leggjum í hann, ræða um verðandi fósturfjölskyldur (ekki erum við samt allar komnar með fjölskyldu) og þannig. Ég er búin að tala um þetta við nokkrar ykkar og öllum virðist henta vel að hittast á miðvikudaginn í næstu viku, þ.e.s daginn fyrir fundinn. Allavega ein af okkur býr úti á landi og þá verður hún komin í bæinn. Þannig að hljómar þetta ekki bara vel?:

Kaffi París (duh!) kl 20:00 á miðvikudaginn

Ég fór síðan á skrifstofu AFS í dag til að spurjast fyrir um hinar stelpurnar sem eru ekki inná þessari síðu. Því miður var ferðafundur í gangi á sama tíma, en mér var ráðlagt að senda bara póst til Kristínar sem ég ætla að gera bara núna. Þá getur hún kanski hjálpað okkur að koma þessum upplýsingum til þeirra. Svona ef þær vita kanski ekkert af síðunni en mundu vilja hittast;)

vonast þá bara til að hitta ykkur allar á miðvikudagskveld, endilega commentið hérna fyrir neðan hvort þið komist!8)

Kv Guðrún Elsa


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.08.2007 02:29:33 / Karen

Kína á eftir :D

Hæ allir! Jæja þá er loksins komið að þessu að fara til Kína... En sem betur fer er ég ekki að fara að ferðast þetta ein og verð með henni Mörtu á þessu ferðalagi og í búðunum í Peking!!! en núna er nákvæmleg 1 og hálfur tími þangað til að ég legg af stað út á flugvöll og fynst það allveg frekar óraunverulegt!!! Mér líður bara ekki eins og ég sé að fara í ár frá fjölskyldunni minni í ár bara á eftir!!! En er að leka niður af þreytu þannig ætla ekki að hafa þetta mikið lengra í bili en minni bara á síðuna mína www.kinalina.central.is .... það verður bara gaman að fylgjast með ykkur öllum og hvernig gengur hjá öllum :D þannig kveð í bili Karen Rut kinalina!

» 4 hafa sagt sína skoðun

15.08.2007 15:49:29 / Guðrún

Fjölskylda í Frakklandi

Mig langaði að deila með ykkur þessum æðislegu fréttum sem ég fékk í gær. Ég loksins komin með fjölskyldu! Ég mun búa í suður Frakklandi í pinupons litlum bæ (450 mann) sem heitir Secheras, en hann er frekar nálægt ölpunum og tæpri klst keyrslu frá Lyon. Ég mun síðan fara í skóla í bæ sem er í sirka 12 km fjarlægð8)
Fjölskyldan samanstendur af Mr.Jean-Marc Blachon (pabbinn), Mrs. Chantal Blachon (mamman) og börnunum þeirra Cindy og Benoit. Ég veit samt ekker hvað þau eru gömul. Síðan eiga þau líka einn kött og einn hund:D
Pabbinn rekur einhverskonar múraraþjónustu og mamman vinnur við sölumennsku.

Þarna verð ég í hvíta hlutanum :D


Bærinn minn

Tain l'Hermitage
Næsti bær, talsvert stærri

paysage de la Drôme des collines

 

 Au revoir, Guðrún Elsa

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

10.08.2007 19:00:31 / Ásmundur

Ási Argentína

Jaeja thá er madur loksins kominn út, ég skrifadi thetta í skólanum thar sem ég hafdi ekkert ad gera vegna thess ad ég skil ekkert í thví sem kennarinn var ad segja:

Thetta er bara thad vanalega hérna í skólanum, madur skilur varla neitt hérna. Námsefnid sem krakkarnir eru ad laera minnir ótharflega mikid á félagsfraedi í 10. bekk en ég er ekki viss. En annars thá eru "Chicas muy muy lindas, jajajjajajajajajjaja :haha:" hérna og madur faer alveg slatta af athygli hér vegna ljósa hársins og húdarinnar og ég er svona ágaetlega ad fýla thad. Thad er thegar búid ad bjoda mér á 5 mismunandi stadi á laugardagskvoldid og ég hef ekki hugmynd um hvert ég fer :).

Madur er núna farinn ad venjast matmálstímunum hér. Thad var fyrst alveg gedveikt skrítid ad borda kvoldmat svo seint en núna finnst mér thad eiginlega betra heldur en snemma eins og vid gerum alltaf á Íslandi. Maturinn hér er eiginlega gedveikur, gedveikt mikid af nautakjoti og ég elska thad. Fjolskyldan hér er líka alveg gedveikt nice, eiginlega of nice.

En annars hafid thid thad gott á klakanum thid sem erud ekki farin út, njótid vatnsins vel, thid MUNUD sakna thess ég get alveg lofad ykkur thví. Og thid sem erud farin út, thá vaeri ég endilega til í ad heyra í ykkur. Endilega addid mér á msn hjá ykkur hvort sem thid erud farin eda ekki. Msn-id mitt er asmundurg@gmail.com

chau!


» 8 hafa sagt sína skoðun

10.08.2007 15:02:09 / Heiða

komin með fjölskyldu :D

Hæ ég heiti Heiða rós og er á leiðinni til Austurríkis, ég hef aldrei bloggað hérna áður, en ég var sem sé að fá fósturfjölskyldu eins og margir aðrir.

en ég mun búa í Vínarborg, þar að segja í höfuðborginni, og mun búa svona 20 mínútur frá miðbænum í lest, en það mun vera minn aðal ferðamáti þarna úti:D

fjölskyldan mín er á fimmtugsaldri og eiga 2 dætur fæddar 88 og 89..(Y)

mamman vinnur á elliheimilli og pabbinn í einhverju tölvufyrirtæki vínarborgar. þau eiga 2 ketti og dúfur, og þeim finnst rosalega gaman að vinna í garðinnum og fara á skíði.

pabbanum finnst líka gaman að leika sér með lestarmódelin sín sem hann bjó til sjálfur (Y) svo finnst þeim gaman að fara út á vatn og vera á einhverju dæmi: windsurfing. 

en þau búa í suðurhluta-vínarborgar, og húsið þeirra er víst umkringt af risastórum trjám, sást allavega ekki mikið í það á myndinni ..hehe

en aðeins um skólann...ég komst að því að ég þarf að vera í skólannum á laugardegi (Y) haha

en hérna er mynd af skólannum...>


já gangi mér vel að bera fram þetta nafn á þessum skóla XD

fjölskyldan

 

en svo er meira um hana á síðunni minni  http://heidaros.bloggar.is/ :D

msnið mitt er svo heida_90@hotmail.com endilega adda..:P  alltaf gaman að tala við aðra skiptinema ..:D

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.08.2007 19:01:42 / Erla

Fjölskylda!:)

Greinilega fleiri en ég að fá fjölskyldur núna, endilega kíkið á bloggið hérna fyrir neðan : Magga í Dóminíska að segja frá fjölskyldunni;)

 

Og líka ég:) Sá e-mailið fyrir ca. klst og hún samanstendur af

- Mamma : Ana Pilar Guerrero Massuh, fædd 1963 og þar af leiðandi 44 ára

- Pabbi : Cristobal Punina Lozano, fæddur 1960 (47 ára) og kokkur

- Bróðir : Jamil Cornejo Guerrero, fæddur 1987

- Systir : Caroline Cornejo Guerrero, fædd 1989

Svo til að toppa þetta allt þá eiga þau tvo hunda:)... og búa í Guayaquil:)

 Annars eru þetta allar upplýsingar sem ég hef í bili, læt vita um leið og meira berst!:)

 

14 dagar í brottför;)

 

- Erla, Ecuador


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.08.2007 11:19:19 / Magga

Fjölskyldan

 

Halló, ég er á leið til Dóminíska Lýðveldisins og var að fá fullt af upplýsingum um fjölskylduna mína í dag, ég er búin að hafa einunbgis nöfn og annað í laaaangan tíma, svo þetta var nánast himnasending. Þetta er tekið af blogginu mínu:

Ég fékk allskonar upplýsingar um fjölskylduna mína. :D
Þó ekki email. :(

Hérna koma þær:

Pabbinn er semsagt Amaurys González hann er 45 ára og mamman er Marinelys Mejía og er að verða 44 ára. :D
En það stendur samt að pabbinn býr ekki heima. Þau eru víst skilin. Og það þýðir að ég muni ekki búa með neinum karlkyn í ár! haha

Systir mín Maura González Mejía fædd 89' segir að hún sé "talkative". Híhí, ég ætla að ná spænskunni fljótt. Svo á ég aðra systur, stendur voða lítið um hana... stendur í raun bara: Marianny(hija)/estudios. :/
En ég held að ég mun búa líka með "ömmu minni" sem heitir María og er 82 ára. :D

Þau voru víst með annan skiptinema árin 2006-2007 frá Finnlandi.

Það sem þeim finnst gaman að gera saman er að horfa á sjónvarið, íþróttir og borðleiki.


ALLIR AÐ LESA ÞETTA! GUÐ HJÁLPI MÉR....
Time Teengager is expected to return home..
Week days: 9.00 pm
Weekend: 10.00 pm




Já, dömur og herrar. Klukkan 10 um helgar á ég að vera komin heim.
Úff púff. Maður er komin aftur í barnadeild grunnskóla.

Þau eru kaþólikkar og fara "occasionally" í kirkju. Og þegar þau fara þá ætlast þau til að skiptineminn komi með. Mér er sama, þetta verður spennandi. :D

Þau eiga hund! Jeij! Loksins. Ég mun eiga hund í ár. *Dansar happy-dance*

Þau segja að "neighbourhood-ið" sé 'quiet' og 'urban'.
Þetta er hús á einni hæð en það er með 4 svefnherbergjum og er með garði. :D
Ég mun vera með mitt eigið herbergi! Vííí... :D
Og það eina sem þau ætlast til að ég þrífi er herbergið mitt og ég leggji á borð. :D

Og skólinn minn heitir Federico Froeber. Eina sem ég fékk um hann á Google er þetta: http://cacoemaco.com/Gallery/Fiesta-De-Hallowen-Colegio-Federico-Froeber/0001_G  :/

15 días þangað til að ég fer út! :D

 x Magga


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.08.2007 09:47:42 / Brynhildur

Brottför

Jæja þá er komið að brottför fyrir Bandaríkjafara, og ég held að flestir séu komin með fjölskyldu :D. Fyrsta brottförin er í dag og þeir sem eru í henni fara á ferðafund klukkan 11:00 í dag. Seinni brottförin er svo klukkan 10:30 í fyrramálið og þeir sem eru í henni þeir fara á ferðafund klukkan 14:00 í dag.

Ég held að flestir séu nú allavegana byrjaðir að pakka og öruglega nokkir búnir. 8)

Já allavegana góða ferð fyrir þá sem fara í dag og fyrir þá sem fara á morgun þá bara sé ég ykkur á ferðafundinum á eftir.

Kveðja Brynhildur


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.08.2007 14:50:39 / Alda

komin með fjölskyldu:D

Jæja:D loksins eftir langa bið er ég komin með fjölskyldu :D

Ég verð á sikiley :D í bæ sem heitir calascibetta.. þar búa ca 5000 manns og það er 90 km frá catania sem er frekar stór borg 8) held ég :D

fjölskyldan mín er samansett af mömmu sem heitir Silvana og er fædd 1957 , pabba sem heitir Mario og er fæddur 1951 8)  ;)  svo á ég einn lítinn bróðir sem heitir alessandro og er 10 ára 8)

þetta er bærinn :haha:

hahahah :D

 

-alda riddari ;)


» 11 hafa sagt sína skoðun

05.08.2007 11:39:21 / Brynhildur

Þetta hlaut að fara að koma

Jæja þá er ég loksins komin með fjölskyldu.:D

Ég verð í Columbia South Carolina, Hjá eldri konu sem heitir Ann og er lögfræðingur, hún er var líka í friðargæsluni og var að koma heim frá Afganistan núna í mars. Hún á eina dóttir sem er gift og flutt af heiman. Þau eiga litla dóttur sem heitir Sarah, Ann passar hana á daginn.

Ég verð í Dreher High School sem er bara rétt hjá húsinu. 8)

Ég er allveg að farast úr spenningi svo núna loksins þori ég að fara að pakka, var allveg viss um að fá símtal frá afs í miðvikudaginn um að ég væri ekkert á leiðinni út.

Kveðja Brynhildur


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.08.2007 20:36:06 / Eyrún

Bandaríkjafarar ath!

Nú fer að styttast í brottför hjá okkur Bandaríkjaförum og við ætlum að hittast kvöldið 7.ágúst (daginn áður en fyrri hópurinn fer, seinni fer 9.ágúst).

Flestir eru til í hitting en þá er bara að finna stað og stund!

Okkur datt í hug að hittast á Ruby Thuesday (Skipholti 19) um hálf 9 leitið, fá okkur eitthvað gott að borða og spjalla..

Hvenig lýst ykkur á þetta? Einhverjar aðrar hugmyndir um stað? Hentar tímasetningin öllum?

ENDILEGA skrifiði hverjir ætla að mæta, því við þurfum eiginlega að panta borð af því að við erum svo mörg :)


» 21 hafa sagt sína skoðun


Dagsetning
23. febrúar 2012
Heimkoma Bandaíkínn.
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1339 dögum
RSS tengill
Brasilía
Venezuela
Nýja-Sjáland
Guatemala
Malasía
Ungverjaland
Mexíkó
Vetrarbrottför
Dóminíska Lýðveldið
Ástralía
Hong Kong
Austurríki
Spánn
Paraguay
Belgía
Klukkan
Viltu vera me�?°?
Sendu bréf til Brynhildar á byo_90@hotmail.com