Skiptinemar 2007

06.09.2007 19:57:18 / Margrét

Loksins loksins

Jæja kæru börn, þá er bara loksins komið að þessu!

Ég hef ætlað sem skiptinemi síðan ég var 11 ára og ég bara trúi ekki að biðin sé að líða undir lok, úff.

Ég er semsagt að fara í fyrramálið og var að fá bráðabirgðafjölskyldu fyrir rúmum klukkutíma sem samanstendur af hjónum sem heita José og María og 13 ára dóttur að nafni Laura. Örverpið ég fæ loksins að vera stóra systir híhí:haha: Ég verð í næststærstu borginni í Galiciu-héraði sem heitir á gallísku A coruna eða á spænsku La coruna svo ég á eftir að læra gallísku líka sem ég er ekkert smá ánægð með :haha:

Við erum líka búin að vera bráðabirgðafjölskylda belgískrar stelpu sem heitir Héléne og það er búið að vera ótrúlega gaman þótt það sé búið að vera pínu erfitt að "sinna henni" þegar maður er að stússast svo mikið sjálfur fyrir ferðina hehe...

Eeen ég ætla ekki að hafa þetta lengra, ég segi bara gangi ykkur öllum ótrúlega vel!

Ítalíu-og Portúgalfarar, við sjáumst í fyrramálið, það verður mega stuð á leiðinni til London hjá okkur 8)

Adiós!

-Margrét Spánarfari 8)

(kíkið á bloggið fyrir neðan, sorry að ég blogga yfir þig Lísa mín og já, ég komst ekki á msn í dag:()


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.09.2007 11:16:50 / EyrúnG

Ítalíustelpur

Hæhæ. Var að pæla hvort þið væruð lausar annað kvöld til að hittast því ég er að koma frá Akureyri og langar voða að hitta ykkur allar:D

Eru eitthverjar lausar? svo er ég með stelpu með mér sem er skiptinemi frá Ítalíu á heima á Sikiley og getur sagt okkur margt.

Endilega látið vita í comment:D


» 5 hafa sagt sína skoðun


Dagsetning
23. febrúar 2012
Heimkoma Bandaíkínn.
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1339 dögum
RSS tengill
Brasilía
Venezuela
Nýja-Sjáland
Guatemala
Malasía
Ungverjaland
Mexíkó
Vetrarbrottför
Dóminíska Lýðveldið
Ástralía
Hong Kong
Austurríki
Spánn
Paraguay
Belgía
Klukkan
Viltu vera me�?°?
Sendu bréf til Brynhildar á byo_90@hotmail.com