Skiptinemar 2007

13.01.2008 20:23:58 / Auður

Fjölskyldan og tungumálið?

Hæ! Ég heiti Auður og er í Austurríki :)

 

Ætla bara að byrja á að segja gleðileg jól og gleðilegt nýtt ár ;) 

 

Ég var að pæla.. hvernig eru fjölskyldumálin búin að ganga hjá ykkur?

 

Mín eru svosem búin að ganga upp og niður.. mér fannst ég á tímabili ekki passa inn í fjölskylduna og fannst líka staðsetningin alveg hræðileg, af því að ég bý lengst út í sveit og það tekur mig ca klukkutíma að komast í skólann á morgnana. Var á tímabili að hugsa um að skipta um fjölskyldu en trúnaðarmaðurinn minn var eitthvað á móti því og eitthvað bull.

En þetta er orðið betra núna, er orðið nánari fjölskyldunni og já verður vonandi bara betra :)

 

En já hverjir eru svo búnir að skipta um fjölskyldur og af hverju skiptuð þið og hvernig reynist svo nýja fjölskyldan? :)

 

Ég ætla bara að viðurkenna það að ég gæti verið orðin miklu betri í þýsku heldur en ég er, tala ennþá pínu ensku en það er bara við vinkonu mína sem er frá usa sem er með mér í bekk, besta vinkona mín btw en hún er að fara heim í byrjun febrúar, er bara eina önn hérna.. finnst það ömurlegt.. en ég læri þá bara meiri þýsku eftir að hún fer heim.. maður verður að bara að horfa á björtu hliðarnar

Hvernig gengur annars tungumálið hjá ykkur?

 

Jæja segi þetta gott í bili :) Hafið það geðveikt gott þessa mánuði sem við eigum eftir ;) 

  


» 10 hafa sagt sína skoðun


Dagsetning
23. febrúar 2012
Heimkoma Bandaíkínn.
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1339 dögum
RSS tengill
Brasilía
Venezuela
Nýja-Sjáland
Guatemala
Malasía
Ungverjaland
Mexíkó
Vetrarbrottför
Dóminíska Lýðveldið
Ástralía
Hong Kong
Austurríki
Spánn
Paraguay
Belgía
Klukkan
Viltu vera me�?°?
Sendu bréf til Brynhildar á byo_90@hotmail.com